Cikk olvasása
10.11.2011
Kjötbollur
- Nautahakk 500 gr
- 2 egg
- 50gr af möndlumjöli
- Nautakraftur
- hvítlauksolía
- paprikkuduft/slatti
- brauðrasp
- skvetta af soya
- salt svartur pipar
- oregano
- Grófmalaður þurrkaður chilli.
Þetta er sett í hrærivél og hnoðað saman. Klípa af hakkinu steikt á pönnu og smakkað til.
Hnoðað í litlar fallegar bollur og hugsað um Nigellu á meðan ef maður er karl á besta aldri.
Tómatsósa.
1 laukur saxaður
1 paprikka söxuð
Bacon 3-4 sneiðar eða skvetta af bbq
Laukur, paprikka og bacon brúnað í potti.
Tómatar í dós maukaðir settir út í og látið sjóða.
Kryddað og smakkað til með
hvítlauks olíu
Sólþurrkuðum tómötum
nautakrafti
oregano
Smá maples eða sykur.
Maukað með töfrasprota og klárt.
Sætkartöflusalat.
Chorizo skorin í litla teninga og steikt á pönnu með smá olivuoliu
sæt kartafla skorin í jafna teninga, steikt með ásamt
1 rauðlauk söxuðum
Þegar þetta er að byrja að mýkjast er bætt við paprikku saxaðri
Kryddað með maldon og svörtum pipar og að endingu söxuðum ferskum basil skellt saman við.
Hægt að bera fram heitt og kalt.
Chorizo pylsan gefur frá sér mikið bragð sem passar mjög vel með sætum kartöflum.